Sport

Naumur sigur hjá Liverpool

Liverpool vann í dag nauman 4–3 sigur á 2. deildarliði Wrexham í fyrsta æfingaleik tímabilsins en jafnframt þeim eina fyrir leik liðsins gegn Total Network Solutions frá Wales í undankeppni Meistaradeildarinnar í næstu viku. Milan Baros og Fernando Morientes skoruðu báðir tvö mörk fyrir Liverpool sem komst í 4–1 eftir að hafa lent undir eftir aðeins 7 mínútur. Markvörðurinn Jose Reina og Bodowin Zenden léku báðir sinn fyrsta leik fyrir Liverpool.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×