Sport

Toppliðin unnu í 1. deild

Öll toppliðin þrjú unnu leiki sína í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld en þá fóru fram þrír leikir í 11. umferð. Topplið Breiðabliks vann nauman sigur á Haukum að Ásvöllum, 0-1 og skoraði Guðmann Þórisson sigurmarkið á 76. mínútu. Það var dramatík á Fjölnisvelli þar sem annað efsta lið deildarinnar, Víkingur tryggði sér 1-2 sigur á Fjölni á lokamínútu leiksins. Varamaðurinn Jón Guðbrandsson tryggði Víkingum sigurinn á 89. mínútu en hann var þá nýkominn inn á. Höskuldur Eiríksson kom Víkingi yfir á 25. mínútu en Gunnar Már Guðmundsson jafnaði fyrir heimamenn í Gravarvogi á 60. mínútu. KA sem er í þriðja sæti vann einnig 0-1 útisigur á Völsungi norður á Húsavík og skoraði Jóhann Helgason mark Akureyringa. Breiðablik er efst með 29 stig, Víkingur í 2. sæti með 22 stig og KA í 3. sæti með 20 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×