Þjónustugjöld ekki felld niður 4. ágúst 2005 00:01
Ekki er líklegt að þjónustugjöld bankanna verði felld niður í bráð eins og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lagði til í gær. Bankarnir skiluðu allir methagnaði á fyrri hluta ársins, samtals um 54 milljörðum króna. Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, hvatti stjórnendur þeirra í gær til að lækka eða fella niður þjónustugjöld og láta almenning þannig njóta góðs af þessum mikla hagnaði. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB-banka sem skilaði 25 milljarða króna hagnaði á fyrri hluta ársins, segir ljóst að bætt afkoma bankanna hafi skilað sér til neytenda. Samanborið við flest önnur lönd sé mjög ódýrt að eiga bankaviðskipti á Íslandi en megnið af hagnaði KB banka sé af fjárfestingabankastarfsemi en ekki viðskiptum við einstaklinga. Spurður hvort einmitt þess vegna megi ekki fella þjónustugjöldin niður segir Hreiðar Már að á síðasta ári hafi helmingur gjaldanna verið endurgreiddur í ljósi góðrar afkomu og rétt sé að bíða og sjá hvað verði gert í lok þessa árs. Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka, tekur í sama streng og Hreiðar Már. Hann segir þjónustugjöldin óverulegan hluta hagnaðarins - þau eigi einfaldlega að standa undir kostnaði. Sá hagnaður sem nú sé að koma fram sé að verulegum hluta gengishagnaður sem geti sömuleiðis snúist í tap þannig að verðlagning á einstökum afurðum geti ekki alfarið tekið mið af afkomu annarra eininga. Ekki náðist í Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóra Landsbankans, en hann er staddur erlendis.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira