Sport

Nokkur meiðsli í landsliðinu

Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Búlgörum á morgun í Sofiu í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið. Auðun Helgason og Heiðar Helguson tóku ekki þátt á fullu á æfingu í gær og Auðun er tæpur fyrir morgundaginn vegna meiðsla í hné. Eiður Smári Guðjohnsen fyrirliði er með hálsbólgu en ætti að verða klár á morgun Landsliðsþjálfararnir eru þó bjartsýnir á að þeir geti verið með á morgun en landsliðið tekur lokaæfinguna í dag. Leikurinn verður beint á Sýn á morgun klukkan 16. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×