Sport

Úrslitakeppni 3. deildar í dag

Síðari leikirnir í undanúrslitum þriðju deildar karla í knattspyrnu um laust sæti í annarri deild að ári fara fram í dag og hefjast þeir báðir klukkan 17:30. Grótta tekur á móti Reyni Sandgerði á Gróttuvelli, en Seltirningar unnu fyrri leikinn 5-4. Leiknir frá Fáskrúðsfirði og Sindri á Hornafirði eigast við á Fáskrúðsfirði í sannkölluðum austfjarðaslag, en fyrri leiknum lyktaði með markalausu jafntefli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×