Sport

Mál John Obi Mikel að leysast

Norska blaðið Verdens Gang hefur greint frá því að hinn umdeildi John Obi Mikel muni líklega ganga til liðs við Manchester United um áramótin eins og til stóð, en hann hefur verið týndur undanfarið eftir að verða miðpunktur rifrildis Chelsea og Manchester United um kaup á honum. Nígeríumaðurinn ungi skrifaði undir samning við United í apríl, en snerist svo hugur og sagðist hafa verið neyddur til að skrifa undir samninginn, því hann hefði frekar viljað ganga til liðs við Chelsea. Mikel er enn hjá norska liðinu Lyn, en hann fór í felur um daginn og ekkert spurðist til hans í langan tíma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×