Sport

Vill hafa leikmenn sína reiða

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist vilja hafa leikmenn sína reiða á milli leikja og segir það aðeins efla þá til dáða á knattspyrnuvellinum. Þetta segir hann í ljósi frétta sem berast af ósætti milli hans og Djibril Cisse, sem fór í fýlu eftir að Benitez reyndi án afláts að selja hann áður en félagaskiptaglugginn lokaðist í ensku knattspyrnunni á dögunum. "Ég mun ræða við Cisse eins og alla aðra leikmenn þegar þeir koma úr landsleikjunum. Það er ekkert sérstakt ósætti á milli okkar, Cisse þótti bara óþægilegt að vera í hringiðu slúðurfrétta um að hann væri á leið frá félaginu um daginn og ef hann er fúll út af því er það bara hið besta mál," sagði Benitez, sem segist vilja hafa leikmenn sína reiða. "Reiðir leikmenn eru í það minnsta á tánum og eru líklegri til að spila betur. Svo lengi sem samskipti manna ganga vel þegar kemur að leik liðsins, er mér alveg sama þó þeir séu reiðir," sagði Spánverjinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×