Sport

Eigum jafna möguleika á sigri

Hrefna Jóhannesdóttir, fyrirliði KR, á ekki von á því að spennan muni trufla KR-ingana í leiknum. "Við ætlum að njóta þess að spila þennan leik og við höfum engu að tapa. Breiðablik er sigurstranglegra liðið og við mætum auðvitað til leiks meðvitaðar um það. En þegar flautað er til leiks eigum við jafna möguleika á því að vinna leikinn og við ætlum að leggja hart að okkur allan leikinn til þess að geta unnið bikarinn. Við munum því selja okkur dýrt og ætlum okkur að sjálfsögðu sigur í þessum leik." Hrefna var næstmarkahæst í Landsbankadeildinni í sumar en hún skoraði tólf mörk í fjórtán leikjum. Hún er ekki í nokkrum vafa um að stuðningur áhorfenda geti ráðið úrslitum. "Umgjörðin í kringum úrslitaleiki skiptir miklu máli og þar eru áhorfendur auðvitað í aðalhlutverki. Ég á von á því að KR-ingar fjölmenni og það verður virkilega skemmtileg stemning á Laugardalsvellinum. Við verðum tilbúnar í slagin þegar flautað verður til leiks."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×