Sport

Guðjón æfur út í dómara

Guðjón Þórðarson lét dómarann sem dæmdi leik Notts County og Chester City í gær, hafa það óþvegið í viðtali við heimasíðu Notts County eftir leikinn, sem endaði 1-1. Guðjón sagði sorglegt að jafn óreyndur dómari fengi að dæma leiki af þessu tagi. Einum leikmanna Notts County var vikið af leikvelli í uppbótartíma í fyrri hálfleik, fyrir það sem dómara þótti vera að gefa andstæðingi sínum kjaftshögg, en Guðjón var ekki sammála því. "Hann kýldi manninn aldrei í andlitið. Hann hefur kannski danglað aðeins í brjóstkassann á honum, en ef það er rautt spjald, veit ég ekki af hverju hann rak manninn ekki útaf sem þrumaði minn mann niður með tveggja fóta tæklingu í leiknum. Það er sorglegt að dómari með jafn litla reynslu og þessi skuli fá að dæma svona leik," sagði Guðjón. Notts County er enn í efsta sæti deildarinnar, þrátt fyrir jafnteflið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×