Loforð gefin fyrir fimm árum svikin 2. júní 2006 07:15 Þrjú HIV-smituð börn á Indlandi Suresh, Gopika og Subiksha heita þessi börn, sem öll eru HIV-smituð og dveljast á munaðarleysingjahæli í Madras á Indlandi. fréttablaðið/ap
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að leiðtogar heimsins hefðu ekki staðið við loforð sem þeir gáfu fyrir fimm árum um að berjast gegn alnæmi. Nú verði þeir að horfast í augu við raunveruleikann og gera sér grein fyrir því að til þess að stöðva útbreiðslu alnæmis verði þeir að vernda þá sem í mestri hættu eru, nefnilega vændiskonur, fíkniefnaneytendur og samkynhneigða. "Við munum ekki ná árangri með því að stinga höfðinu í sandinn og láta eins og þetta fólk sé ekki til eða að það þurfi ekki á hjálp okkar að halda." Annan sagði þetta við upphaf þriggja daga leiðtogafundar Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann vitnaði þar í nýútkomna skýrslu Sameinuðu þjóðanna þar sem fram kemur að hægt hefur á útbreiðslu alnæmis, þótt faraldurinn sé enn alvarlegur. Meðal þess sem leiðtogarnir deila um er hvort réttlætanlegt sé að minnast sérstaklega á áhættuhópa, sem einkum tengjast vændi, fíkniefnum og samkynhneigð. Samkvæmt skýrslunni, sem kom út á þriðjudaginn, eru nærri fjörutíu milljónir manna um heim allan smitaðar af HIV-veirunni, sem veldur alnæmi. Flest smit verða nú orðið á Indlandi, en ástandið er þó enn verst í Afríku sunnan Sahara, þar sem dánartíðnin fer enn hækkandi í sumum löndum. Á leiðtogafundinum í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York er ætlunin að fara yfir stöðuna og athuga hvernig gengið hefur að standa við þau loforð sem gefin voru á svipaðri ráðstefnu, sem haldin var árið 2001. Einnig er meiningin að horfa fram á við og skipuleggja varnir gegn HIV-veirunni um heim allan.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira