Yfirvöld á Indlandi birtu í gær nöfn tveggja ungra manna sem grunaðir eru um hryðjuverk vikunnar, sem urðu um tvöhundruð manns að bana. Andhryðjuverkasveit ríkisstjórnarinnar dreifði myndum af mönnunum til fjölmiðla ásamt nöfnum þeirra. Þeir heita Sayyad Zabiuddin og Zulfeqar Fayyaz, en tilkynningunni fylgdu engar frekari upplýsingar um þá.
Yfirvöld höfðu fyrr um daginn nefnt Lashkar-e-Tayyaba, samtök íslamista í pakistönskum hluta Kasmírhéraðs, sem líklega ódæðismenn, en talsmaður samtakanna neitaði ásökuninni.