Of snemmt að spá 22. júlí 2006 06:15 Höfuðstöðvar KB banka í Borgartúni. Merrill Lynch lýsir áhyggjum af eignatengslum auk lána til hluthafa og stjórnenda í nýrri skýrslu um íslensku bankana. Tónn nýju skýrslunnar er þó örlítið bjartari en þeirrar sem kom út fyrr á árinu.
Merill Lynch telur skuldabréf í Glitni og Landsbankanum stöðuga fjárfestingarkosti, en ekki sérlega spennandi. Greiningardeildin mælir síður með skuldabréfum í KB banka og telja mesta hættu á að bankinn lendi í erfiðleikum með endurfjármögnun skuldabréfa. Skýrsla Merrill Lynch ber titilinn Of snemmt að spá, og er þar vísað til ummæla fyrrum forsætisráðherra Kína, Zhou Enlai, þegar hann var spurður um áhrif frönsku byltingarinnar á strauma og stefnur í stjórnmálum. Þetta er önnur skýrsla Merrill Lynch um íslensku bankana á árinu, en sú fyrri var af mörgum talin hafa átt stóran þátt í gengisfalli krónunnar snemma árs. Tónn nýju skýrslunnar er öllu léttari þótt enn treysti höfundar sér ekki til að lýsa trausti á íslenska bankakerfið. Merrill Lynch segir að væntanleg uppgjör Glitnis og KB banka gefi ranga mynd af raunverulegri stöðu. Stór hluti hagnaðarins sé til kominn vegna hækkunar verðtryggðra eigna og gjaldeyrishagnaðar, auk þess sem veiking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum sýni uppgjörin í jákvæðara ljósi en ella. Merrill Lynch telur að þrátt fyrir að dregið hafi úr krosseignarhaldi og eignatengslum í íslensku viðskiptalífi sé enn langt í land. Tengsl KB banka og Exista eru sérstaklega nefnd til sögunnar auk lána Glitnis til æðstu stjórnenda bankans. Þá lýsir höfundur skýrslunnar yfir áhyggjum sínum af framvindu mála í Straumi-Burðarási, þar sem ýmislegt hafi gengið á undanfarin misseri. Merrill Lynch telur KB banka enn veikastan fyrir endurfjármögnun á markaði og áætlar að bankinn þurfi rúma sex hundruð milljarða íslenskra króna fyrir árslok 2007 til að standa við skuldbindingar. Það er ýmislegt sem veldur okkur áhyggjum. Þar mætti nefna krosseignarhald auk lána bankanna til hluthafa og stjórnenda. Hins vegar virðist sem ýmislegt horfi til betri vegar. Athyglisvert er að frumkvæðið kemur ekki frá löggjafanum heldur markaðnum sjálfum, segir í skýrslunni. Skýrsluhöfundar Merrill Lynch eru öllu svartsýnni en greiningardeild bandaríska fjármálafyrirtækisins Morgan Stanley. Morgan Stanley gaf á dögunum út fréttarit þar sem meðal annars var mælt með kaupum á skuldabréfum í Glitni og bent á að þrátt fyrir að íslenskt efnahagslíf væri óstöðugt kæmu sextíu prósent tekna bankans erlendis frá.
Viðskipti Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira