Glitnir kaupir eigin skuldabréf 5. ágúst 2006 07:00 Ingvar H. Ragnarsson, hjá glitni Bankinn keypti í vikunni eigin skuldabréf fyrir tæpa 2,3 milljarða króna. MYND/Vilhelm
Glitnir hefur keypt eigin skuldabréf fyrir 25 milljónir evra sem nemur tæpum 2,3 milljörðum króna. Í tilkynningu til Kauphallarinnar í Lundúnum kemur fram að bankinn eigi yfir tíu prósent í þeim flokki, sem þessi bréf tilheyra, en það eru um 35 milljónir evra. Ástæðan fyrir þessum endurkaupum er fyrst og fremst sterk lausafjárstaða bankans í augnablikinu. Við erum með vel yfir tvo milljarða evra í lausu fé og því erum við í raun og veru að ávaxta það í þessum bréfum, segir Ingvar H. Ragnarsson, forstöðumaður alþjóðlegrar fjármögnunar hjá Glitni. Hann bætir við: Við sjáum einfaldlega gott fjárfestingatækifæri í okkar eigin útgáfum á eftirmarkaði. Skuldabréfaflokkurinn kemur til greiðslu á næsta ári og þar með lækkar endurfjármögnunarþörf bankans sem kaupunum nemur. Ingvar segist hafa fundið fyrir vaxandi eftirspurn eftir skammtímaskuldabréfum Glitnis í vikunni eftir að félagið birti afkomu sína. Í vikunni hefur tryggingaálag á skuldabréfum allra bankanna lækkað eftir fremur jákvæð skrif frá erlendum markaðsaðilum.
Viðskipti Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira