Boða hagræðingu á 365 18. ágúst 2006 09:49 Stjórnendur Dagsbrúnar og dótturfélaga á kynningarfundi. Fréttablaðið/GVA
Stjórnendur Dagsbrúnar boða aðgerðir til lækkunar kostnaðar á innlendum og erlendum fjölmiðlarekstri samsteypunnar, til að bregðast við 1,5 milljarða króna tapi á fyrri hluta árs. Ari Edwald, forstjóri 365, var spurður hvort félagið hygðist skera einhvern fjölmiðil niður með sama hætti og gert var við DV á árinu. Nei, svo róttækar aðgerðir eru ekki í pípunum. Þótt ekki sé greint frá afkomu einstakra félaga bera reikningar Dagsbrúnar það með sér að dótturfélagið 365 er rekið með talsverðu tapi þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta og fjármagnsliða. Gengistap af erlendum lánum kemur illa við 365 eins og önnur rekstrarfélög. Þá lækkaði framlegðarhlutfall (EBITDA) alls fjölmiðlahlutans um helming milli ára, úr fjórtán prósentum í sjö. Áfram verður unnið að hagræðingaraðgerðum hjá breska útgáfufyrirtækinu Wyndeham Press, félagi sem Dagsbrún yfirtók í vor. Er áætlað að aðgerðirnar kosti sex hundruð milljónir króna sem skili sér í hálfs milljarðs ábata á ári. Ari vill ekki fara nákvæmlega út í þær aðgerðir sem farið verður út í. Við höfum ekkert í hyggju að rifa seglin með þeim hætti sem við gerðum gagnvart DV. Það er viðvarandi verkefni að auka hagkvæmnina í rekstrinum. Ari bendir á að mikill innri vöxtur hafi einkennt ljósvaka- og prentmiðla eða um átján prósent á milli ára. Sterkustu fjölmiðlar 365 eru með verulegan vöxt í auglýsingatekjum á fyrri hluta ársins og sjá stjórnendur Dagsbrúnar engin teikn um það að auglýsingamarkaðurinn sé að veikjast. Hins vegar höfum við stofnað mikið af nýjum einingum. Þær hafa ekki enn þá skilað þeirri aukningu í auglýsingatekjum sem við höfum verið að vonast eftir. Hafa auglýsingadeildir verið endurskipulagðar. Auglýsingatekjur hafa verið að aukast verulega. Við viljum bara sjá þær aukast enn meira, segir Ari. Einnig hafa breytingar orðið á skipulagi NFS þar sem slegið er saman daglegum fréttum og kvöldfréttum. Þetta á að leiða til meiri hagkvæmni hjá NFS og öðrum miðlum okkar sem nota fréttirnar. Aðspurður um rekstur NFS segir Ari að tekjur stöðvarinnar hafi verið verulega minni en áætlað var fyrstu mánuðina eftir að hún fór í loftið en nú sjáist mikil batamerki. Þá gangi rekstur hins nýja helgarblaðs DV vel. Í sumar voru gerðar nýjar áætlanir fyrir NFS og aðra miðla 365. Uppgjörið gefur ekki tilefni til breytinga að sögn Ara. Hlutabréf í Dagsbrún lækkuðu um tæp tíu prósent í gær og hefur gengi bréfanna ekki verið lægra síðan í byrjun nóvember á síðasta ári. 365 er útgefandi Fréttablaðsins.
Viðskipti Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira