Efnahagslegt frelsi eykst hér 9. september 2006 00:01 Börn að leik. Ísland er í níunda sæti á lista RSE yfir efnahagslegt frelsi í heiminum, sem birtur var í gær. MYND/Heiða
Ísland er í 9. sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi þjóða. Í árlegri skýrslu um efnahagsfrelsi í heiminum, sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) gaf út í gær, kemur fram að frelsi af þessum toga er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum úr fátækt. Þá kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem fylgir skýrslunni að þróunaraðstoð hafi ekki jákvæð áhrif á hagvöxt meðal fátækustu þjóða heims. Efnahagslegt frelsi hafi aukist síðastliðin 25 ár og hafi það haft mikil áhrif á velmegun almennt. Sé litið til efnahagslegs frelsis komi í ljós að hagur fátækari þjóða vaxi mun hraðar en ríkra og við slíkar aðstæður fari því fjarri að þær séu fastar í vítahring fátæktar. Hong Kong er í efsta sæti listans með mesta efnahagslega frelsið og 8,7 af 10 í einkunn. Singapúr er í 2. sæti með 8,5 stig en Nýja-Sjáland, Sviss og Bandaríkin deila þriðja til fimmta sæti með einkunnina 8,2. Flestar þeirra þjóða sem fengu lægsta einkunn eru frá Afríku, Suður- og Mið-Ameríku og fyrrum kommúnistaríkjunum. Ísland, sem var í 13. sæti á listanum í fyrra, fékk einkunnina 7,9 af 10 mögulegum og hækkar um 0,2 stig á milli ára.
Viðskipti Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira