Samkeppniseftirlitið mundar lækningartólin 25. október 2006 07:00 Páll Gunnar Pálsson Páll Gunnar, sem er forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir fyrirtækjum með markaðsráðandi stöðu óheimilt að beita meðölum í samkeppni sem minni fyrirtæki sem ekki eru ráðandi á markaði mega nota að vild. Markaðurinn/Hrönn
Fordæmið sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála gaf þegar hún staðfesti nýverið ógildingu Samkeppniseftirlitsins á samruna Lyfjavers og Lyfja og heilsu kann að skipta máli þegar teknir verða til skoðunar aðrir markaðir en lyfjamarkaður. Samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins fara lyfsölukeðjurnar Lyfja og Lyf og heilsa saman með markaðsráðandi stöðu á markaði og mat þess að staðan gerði fyrirtækjunum kleift að samhæfa hegðun sína á markaðnum án þess að þurfa að taka tillit til keppinauta eða neytenda. Telur Samkeppniseftirlitið úrskurð áfrýjunarnefndar hafa talsvert fordæmisgildi og að hann geti auðveldað Samkeppniseftirlitinu að vinna gegn skaðlegri fákeppni á ýmsum mörkuðum hér. Viðmið nýtast á öðrum mörkuðumUmferð í Reykjavík Í viðskipta- og athafnalífi hér er staðan víða sú að fá stór fyrirtæki deila með sér ákveðnum mörkuðum. Má þar nefna tryggingar, flutninga- og bankastarfsemi sem dæmi. Staðfest hefur verið ákvörðun Samkeppniseftirlits þar sem lyfsölukeðjum eru settar skorður því þær fari saman með markaðsráðandi stöðu. Markaðurinn/HeiðaPáll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir ekkert hægt að fullyrða um hvort svipuð staða sé uppi á öðrum mörkuðum og á lyfsölumarkaði án þess að það sé kannað sérstaklega. Mjög mikilvægt er samt að þarna er með nokkuð skýrum hætti búið að draga upp hvaða viðmið eru höfð til hliðsjónar þegar sameiginleg markaðsráðandi staða er metin. Þau viðmið nýtast við athuganir á öðrum mörkuðum. Páll Gunnar segir þetta vera í annað sinn sem fyrirtæki séu af áfrýjunarnefnd samkeppnismála talin fara með sameiginlega markaðsráðandi stöðu en árið 2001 fjallaði úrskurðarnefnd á sambærilegan hátt um samruna á fóðurmarkaði þar sem ógilt voru kaup Mjólkurfélags Reykjavíkur svf. og Lýsis hf. á öllum hlutabréfum í Fóðurblöndunni hf. Á árinu 2000 taldi samkeppnisráð, í áliti þar sem lagst var gegn fyrirhugaðri sameiningu Landsbanka og Búnaðarbanka, að viðskiptabankarnir væru sameiginlega markaðsráðandi. Niðurstaða áfrýjunarnefndar núna er mjög skýr og mikilvægt að fá þetta staðfest, sérstaklega fyrir hagsmuni neytenda því sú staða kann að vera uppi á fleiri mörkuðum að fákeppni kunni að vera þannig úr garði gerð að enginn einn sé markaðsráðandi en samt sé samkeppni hindruð. Páll Gunnar segir ljóst að hér séu fleiri markaðir þar sem einhverjir tveir eða þrír séu stærstir. Til dæmis í byggingaverslun og svo eru náttúrlega fáir stórir aðilar á vátryggingamarkaði. Það þýðir ekki að hægt sé að fullyrða að uppi sé sameiginlega markaðsráðandi staða á þeim mörkuðum. Til að meta það þarf ítarlega rannsókn að gefnu tilefni. Að fenginni þessari niðurstöðu á lyfjamarkaði segir Páll Gunnar ljóst að stóru lyfjakeðjurnar verði að horfa a stöðu sína frá þessum sjónarhóli. Miklar skyldur eru lagðar á fyrirtæki sem eru markaðsráðandi, hvort sem þau eru það ein og sér eða sameiginlega. Þau þurfa að passa upp á að þau séu ekki að hindra samkeppni frá smærri keppendum og misnota aðstöðu sína. Einkenni á sjúkum markaðiMarkaðurinn hefur hins vegar heimildir fyrir því að nokkurrar óánægju gæti meðal smærri fyrirtækja á lyfjamarkaði með þá túlkun að Lyfja og Lyf og heilsa fari saman með markaðsráðandi hlut. Engin ákvæði laga eru sögð verja smærri fyrirtæki gegn ofureflinu sem í lyfjakeðjunum felist og þeim frjálst að opna verslanir ofan í smærri apótekum, en þar séu menn í raun lokaðir í sínum rekstri og megi ekki selja hann til keðjanna vegna mats eftirlitsins á stöðu þeirra. Segja menn keðjurnar ekki mega kaupa, en þeim sé heimilaður svokallaður innri vöxtur, sem þýði að þær megi bæta við sölustöðum að vild. Hvað finnst forstjóra Samkeppniseftirlitsins um þau rök að með túlkun sinni á rekstrarumhverfinu sé verið að loka litlu aðilana inni í rekstri sínum? Ég get ekki fallist á þau sjónarmið, segir Páll Gunnar. Þessum reglum er einmitt ætlað að vernda samkeppni á þessum markaði og koma í veg fyrir að markaðsráðandi fyrirtæki veiki keppinauta sína með óeðlilegum aðgerðum. Auðvitað getur í samrunamálum litið íþyngjandi út þegar einhver vill losna við rekstur sinn en fær ekki að selja stóru aðilunum því þar með sé markaðsráðandi staða þeirra styrkt þannig að verði samkeppnishamlandi. En grunnhugsunin með þessum reglum er að tryggja samkeppnislega gerð markaða og stuðla þannig að því að samkeppni geti þrifist á viðkomandi markaði. Ef allt er með felldu þá eru fleiri kaupendur að fyrirtækjum en bara markaðsráðandi keppinautar. Það er einkennilegur markaður þar sem enginn annar er til í að kaupa fyrirtæki en markaðsráðandi aðili sem sér sér hag í að minnka með því samkeppni. Því er það rökleysa að halda fram að reglurnar skaði minni aðilana, segir hann og telur ákveðið sjúkdómseinkenni á markaðnum að einhverjum smærri fyrirtækjum þyki að sér vegið þegar með aðgerðum sé unnið gegn samkeppnishindrunum. Einn má annar ekkiÞá segir Páll Gunnar að sé sú staða uppi á tilteknum markaði að eitt eða fleiri fyrirtæki fari með markaðsráðandi stöðu geti það meðal annars takmarkað möguleika þeirra til að vinna þannig í samkeppni að setja upp verslanir nálægt samkeppnisaðilum. Þetta snýr ekki bara að samrunamálum, heldur líka að því hvernig fyrirtækin haga sér almennt í samkeppninni, t.d. hvort menn séu að misnota markaðsráðandi stöðu sína með undirboðum, með því að sækja hart að viðskiptavinum smærri keppenda eða með öðrum slíkum aðferðum. Þá liggur í hlutarins eðli að aukið aðhald og eftirlit er til staðar á markaði þar sem einhver einn eða fleiri fara með markaðsráðandi stöðu. Séu menn í þessari stöðu er mjög líklegt að keppinautarnir kvarti yfir þeim, og að Samkeppniseftirlitið taki einstök mál til skoðunar. Á markaðnum, hvort sem það er Samkeppniseftirlitið sjálft eða keppinautar, þá skynja menn það mjög fljótt komi upp einhver svona staða og það að vera í markaðsráðandi stöðu setur mönnum miklar skyldur að þeim sé ekki heimilt að vinna með sama hætti í samkeppninni eins og ef þeir væru smærri aðilar á dreifðari markaði. Háttsemi á borð við undirverðlagningu eða aggresíva ásókn í viðskiptavini keppinautanna getur verið ólögmætt fyrir fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu en fullkomlega eðlilegt fyrir smærri fyrirtæki. Af orðum Samkeppniseftirlitsins um mikilvægi staðfestingar ákvörðunarinnar um samrunann á lyfjamarkaði frá því í sumar verður vart annað ráðið en að mælistikan sem þar var beitt verði lögð á aðra markaði þar sem fáir stórir eru á markaði. Páll Gunnar segir hins vegar ekkert liggja fyrir um það enn hvernig Samkeppniseftirlitið komi til með að nýta sér fordæmið sem gefið hefur verið. Það getur verið í tilefni af kvörtunum eða í athugunum að eigin frumkvæði, og einnig vegna tilkynninga um samruna. Athuganir af þessu tagi eru eins misjafnar og þær eru margar.
Fréttaskýringar Viðskipti Mest lesið Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Fleiri fréttir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Sjá meira