Traustar undirstöður og ný skref til sóknar 28. desember 2006 07:30 Árni Oddur Þórðarson. Eyrir fer fyrir hluthöfum í Össuri og Marel og leiddi sókn þessara félaga á árinu, auk þess sem Árni Oddur vakti máls á mikilvægum spurningum varðandi stöðu gjaldmiðilsins á árinu.
Vöxtur atvinnulífsins síðustu ár hefur verið ævintýri líkastur. Íslenskt atvinnulíf hefur vaxið og hlutabréfaverð hækkað verulega hér á landi síðustu árin á sama tíma og ákveðin stöðnun hefur átt sér stað á alþjóðamörkuðum. Á árinu 2006 snerist myndin við og hlutabréfaverð stóð í stað hér á landi, á sama tíma og mikillar bjartsýni fór að gæta á alþjóðamörkuðum og hlutabréfaverð tók að hækka á nýjan leik. Almennt má segja að árið í ár hafi verið ár endurskipulagningar í íslensku atvinnulífi eftir mikinn vöxt undangenginna ára. Undirstöður hafa verið treystar og brugðist hratt og vel við ábendingum erlendis frá um hvað mætti betur fara. Eftir stendur að fjármálakerfið hér á landi stendur mun sterkara en áður og getur tekið ný skref til frekari sóknar á næstu árum.Eyrir styrkir sig ennFjárhagur Eyris Invest styrktist enn frekar á árinu með útgáfu nýs hlutafjár og til liðs við félagið gengu öflugir fjárfestar. Eyrir Invest er nú betur í stakk búið að styðja við metnaðarfull vaxtarmarkmið Marels og Össurar á sama tíma og við freistum þess sem fyrr að auka arðsemi félagsins og draga úr áhættu með fjölbreyttu erlendu eignasafni. Marel í forystusætiEyrir Invest varð stærsti hluthafinn í Marel á árinu og er þetta fyrsta heila starfsárið sem ég veiti fyrirtækinu stjórnarformennsku. Markaðurinn sem Marel vinnur á, við gerð háþróaðra matvælavinnsluvéla, er áhugaverður þar sem hann vex mjög hratt vegna neyslubreytinga og ekki síður vegna þess að ekkert eitt fyrirtæki er afgerandi leiðtogi á markaðnum í dag. Í upphafi árs setti Marel sér metnaðarfull vaxtarmarkmið til næstu ára sem miða að því að ná forystu á þeim markaði sem félagið starfar á og margfalda veltu og hagnað félagsins.Við sýndum svo í verki á næstu mánuðum að okkur var full alvara og tvöfölduðum umsvifin með yfirtökum á tveimur af okkar helstu keppinautum; AEW Delford í Bretlandi og Scanvaegt í Danmörku. Ef okkur tekst að spila vel úr þeirri stöðu sem við erum nú komin í er framtíðin björt. Þeirri sýn deila fyrrum eigendur Scanvaegt með okkur sem kusu að vera hluthafar í sameinuðu fyrirtæki í stað þess að fá staðgreiðslu fyrir fyrirtæki sitt. Í framhaldi af þessum yfirökum var ráðist í afar vel heppnað hlutabréfaútboð til að skapa grunn að frekari vexti Marels.Alþjóðavæðingin kallar á stærri viðskiptamyntirUm áramótin rennur Kauphöll Íslands inn í OMX sem er sameiginlegur markaður kauphalla á Norðurlöndum og í Eystrarsaltsríkjunum. Við það eykst sýnileiki og seljanleiki íslenskra hlutabréfa verulega. Jafnframt mun samanburður á rekstri félaganna og virðisaukningu þeirra verða skýrari gagnvart öðrum sambærilegum fyrirtækjum.Framleiðslufyrirtækin sem skráð eru í Kauphöllinni hafa nú nær öll tekið upp aðra starfrækslumynt en krónur og fyrsti bankinn hefur tilkynnt að hann muni gera það einnig. Meginstarfsemi bankanna er tengdur beint eða óbeint öðrum gjaldmiðlum en íslensku krónunni og því dregur það verulega úr áhættu hvers banka, og fjármálakerfisins í heild, að skipta um mynt. Næstu skref sem verða skoðuð í þessum efnum er að eiga viðskipti með hlutabréf þeirra félaga sem eru í Kauphöllinni í öðrum myntum en krónu.Atvinnulífið hér á landi er einfaldlega orðið of stórt og fjölþjóðlegt til að geta stuðst við þá örmynt sem íslenska krónan er. Á sama tíma og atvinnulífið tekur ábyrga afstöðu og skiptir um mynt til að minnka áhættu og auka sóknartækifæri er nauðsynlegt að almenn umræða á vettvangi stjórnmálanna fari af stað um framtíðarfyrirkomulag peningamála í landinu.Að lokum vil ég þakka fyrir árið sem er að líða og óska öllum gleðilegs nýs árs.
Birtist í Fréttablaðinu Héðan og þaðan Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira