Hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja rúmar 180 milljónir 5. apríl 2006 15:30 Frá Vestmannaeyjum. Mynd/Vísir
Hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja nam 180,4 milljónum króna á síðasta ári. Heildarrekstrartekjur námu 789,2 milljónum króna og gjöld námu 570,6 milljónum króna að meðtöldum afskriftum. Reksturinn gekk vel á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sparisjóði Vestmannaeyja. Hagnaður fyrir skatta nam 218,6 milljónum króna. Þá kemur fram að hefðbundin bankastarfsemi hafi skilað minni hagnaði á síðasta ári en árið 2004. Hins vegar hafi gengismunur verðbréfaeignar aukist á milli ára. Bókfært eigið fé Sparisjóðsins nam 935 milljónum króna í árslok og er það 29,3 prósenta hækkun frá 2004. Þá hækkaði niðurstaða efnahagsreiknings um 6,1 milljarð króna og er það 17,6 prósenta hækkun á milli ára. Heildarútlán Sparisjóðsins að meðtöldum fullnustueignum námu í lok síðasta árs 4.112,9 milljónum króna og er það 25,9 prósenta hækkun frá 2004. Stærstu útlánaflokkarnir voru til einstaklinga og íbúðalán eða rúm 73 prósent. Lán til sjávarútvegs námu hins vegar 11,7 prósentum í árslok. Lán til verslunar, þjónustu- og annarrar atvinnustarfsemi námu 12,9 prósentum en lán til ríkis og bæjarfélaga voru 2,1 prósent. Hlutfallslega hækkuðu íbúðalán til einstaklinga mest, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira