Viðsnúningur á markaði 24. apríl 2006 17:00
Greiningardeild KB banka segir mikla lækkun hafa átt sér stað á með mikilli gengisveikingu krónunnar og lækkunum á verði skulda- og hlutabréfa á mörkuðum að undanförnu. Í hálf fimm fréttum bankans segir að frá byrjun síðasta mánar hafi krónan veikst um tæp 19 prósent á sama tíma og Úrvalsvísitalan hafi lækkað um tæp 15 prósent. Viðsnúningur hafi hins vegar orðið á þróuninni á föstudag þegar krónan styrktist um 2,1 prósent í metviðskiptum, sem námu 63,2 milljörðum króna. „Gengi krónunnar hélt áfram að styrkjast í dag eða um 1,36% í 15 milljarða króna viðskiptum. Einnig héldu skulda- og hlutabréf áfram að hækka í verði og hafði Úrvalsvísitalan hækkað um 2,2% í lok dags og verð skuldabréfa um 0,1-1,25%," segir greiningardeildin. Þá segir greiningardeildin jafnframt að greint hafi mátt talsverða fylgni á milli verðþróunar á mörkuðum að undanförnu, en verð hluta- og skuldabréfa hefur jafnan hækkað þegar krónan hefur verið að styrkjast og lækkað ef krónan hefur verið að veikjast. „Þessa miklu fylgni má að öllum líkindum rekja til þess að fjárfestar hafa verið að fara út af íslenska markaðinum í stað þess að flytja sig á milli íslenskra fjárfestinga. Til að mynda er þekkt að fjárfestar flytji sig úr hlutabréfum yfir í skuldabréf þegar óvissa ríkir á mörkuðum. Undanfarna tvo viðskiptadaga virðist hins vegar sem markaðsaðilar séu aftur farnir að sjá fjárfestingartækifæri á íslenska markaðnum," segir í hálf fimm fréttum KB banka.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira