Sakaðir um að hafa barið Zarqawi til dauða 11. júní 2006 19:30
Bandarískir hermenn eru sakaðir um að hafa barið al-Zarkawi, leiðtoga al-Kæda í Írak, til dauða. Samtökin hóta stórfelldum árásum í landinu til að hefna leiðtoga síns. Al-Zarqawi hefur verið heilinn á bakvið árásir al-Kæda í Írak og Bandaríkjaher lagði allt kapp á að koma honum fyrir kattarnef, en það er ekki þar með sagt að engu máli skipti hvernig það hafi verið gert. Talsmenn hersins fullyrða að Zarqawi hafi látist af völdum sára sem hann hlaut eftir sprengjuárás á vígi árásarmanna. Íraki sem býr í grennd við árásarstaðinn fullyrðir hins vegar að hermenn hafi barið Zarqawi til dauða. Hann hafi séð hvar hermenn börðu og spörkuðu í hann uns ekkert lífsmark hafi verið eftir. Krufnungu á líki hans er lokið, en niðurstöðurnar liggja ekki enn fyrir. Í dag hótuðu svo al-Kæda í Írak hefndum. Í tilkynningu sem birtist á heimasíðu herskárra múslima er fullyrt að stórfelldar árásir séu í vændum og óvininum verði ekki vært á næstunni. Þá segir þar einnig að al-Kæda í Írak hafi endurnýjað bandalag sitt við Ósama Bin Laden, þó að ekki hafi verið ákveðið hver taki við af Zarqawi.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira