Lögmaður Saddams myrtur 21. júní 2006 19:15
Einum af aðallögfræðingum Saddams Hussein var rænt í morgun og hann myrtur. Hann er sá þriðji í verjendaliðinu sem fellur fyrir hendi morðingja. Það var í dögun sem hópur manna í lögreglubúningum réðust inn í hús Khamis al-Obeidi, eins af lögmönnum Saddams Hussein, fyrrverandi Íraksforseta, og sökunauta hans, í höfuðborginni Bagdad og námu hann á brott. Nokkrum klukkustundum síðar fannst lík hans sundurskotið við gatnamót annars staðar í borginni. Al-Obeidi er ekki fyrsti lögmaðurinn í liði Saddams sem er myrtur því tveir starfsbræður hans mættu svipuðum örlögum í október á síðasta ári, skömmu eftir að réttarhöldin hófust. Í kjölfar þess var ákveðið að herða mjög öryggisráðstafanir tengdum réttarhöldunum og meðal annars með því að flytja stærstan hluta verjendaliðsins til Jórdaníu. Al-Obeidi hélt hins vegar búsetu sinni í Bagdad og hefur nú goldið fyrir það með lífi sínu. Annar verjandi Saddams sagði Bandaríkjamenn bera ábyrgð á morðinu þar sem þeir hafi slakað á öryggiskröfunum, beinlínis til að spilla fyrir sanngjörnum réttarhöldum. Morðið hefur verið fordæmt harðlega í Írak í dag en enginn hefur lýst yfir ábyrgð á því. Hitt er svo víst að margir vilja Saddam feigan og því koma margir til greina.
Erlent Fréttir Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira