Methagnaður hjá Sparisjóði Keflavíkur 16. ágúst 2006 15:20 Merki Sparisjóðs Keflavíkur. Mynd/Páll
Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á fyrstu sex mánuðum ársins nam rúmum einum milljarði króna en það er 106.6 prósenta aukning frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður fyrir skatta nam tæpum 1,2 milljarði króna. Þetta er mesti hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á einum árshelmingi og er arðsemi eiginfjár 55 prósent sem er ein sú mesta frá stofnun sjóðsins. Í tilkynningu frá Sparisjóðnum segir að vaxtatekjur á fyrri hluta ársins hafi numið rúmið 2,7 milljörðum króna, sem er 124 prósenta hækkun frá sama tímabili á síðasta ári. Þá námu vaxtagjöld tæpum 2,4 milljörðum króna, sem er 214 prósenta hækkun á milli ára. Hreinar vaxtatekjur námu 393,4 milljónum króna samanborið við 480,0 m.kr. á sama tímabili árið áður. Vaxtamunur, þ.e. hreinar vaxtatekjur í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns var 2,3 prósent á tímabilinu en 3,52 prósent á sama tímabili árið áður. Aðrar rekstrartekjur jukust um 749,7 milljónir króna og voru 1.46 milljarðar króna á tímabilinu. Laun og launatengd gjöld jukust um 15,6 prósent og annar almennur rekstrarkostnaður jókst um 24,8 prósent. Heildarinnlán í Sparisjóðnum ásamt lántöku námu í lok júní 29,4 milljörðum króna og er það 18 prósenta aukning á tímabilinu. Í lok tímabilsins var niðurstöðutala efnahagsreiknings tæpir 38 milljarðar króna er það tæplega 6,2 milljarða króna hækkun á tímabilinu. Eigið fé Sparisjóðsins í júnílok nam 4,6 milljörðum króna og hefur eigið fé aukist um 898,6 milljónir króna eða 23,9 prósent. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 10,45 prósent en var 11,97 prósent á sama tíma árið áður. Áætlanir benda til að afkoman verði góð á árinu 2006, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sparisjóðnum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira