Pardew vill unga leikmenn til West Ham 2. desember 2006 13:30 Javier Mascherano og Carlos Tevez verða líklega áfram hjá West Ham. MYND/Getty Images
Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, segir að han horfi helst til góðra ungra leikmanna þegar kemur að því að hann styrki lið sitt. Líklegt er að það verði strax í janúar þegar leikmannaglugginn opnast að nýju, enda Eggert Magnússon búinn að lofa honum allt að milljarði króna. Shaun-Wright Phillips hjá Chelsea og Curtis Davies hjá WBA hafa verið orðaðir við West Ham að undanförnu en Pardew vill ekkert segja um hvort einhver sannleikur sé í þeim sögusögnum. "Það sem ég get sagt er að West Ham er félag sem hefur alltaf lagt mikið upp úr starfi með unga leikmenn. Það er það sem við viljum - fá unga leikmenn með mikla hæfileika og möguleika. Það er síðan okkar að rækta þessa hæfileika og búa til enn betri knattspyrnumenn," sagði Pardew. Stjórinn bætti því einnig við að Argentínumennirnir Carlos Tevez og Javier Mascherano yrðu líklega áfram hjá West Ham út leiktíðina. Pardew hitti Kia Joorabchian, "eiganda" leikmannanna á fundi fyrir helgi sem var að sögn Pardews afar góður. "Hann lýsti yfir vilja sínum að gefa þeim áfram tækifæri til að sanna sig hér á Englandi. Ég hef fulla trú á þeim, hugarfar þeirra er fyrsta flokks og það eina sem vantar upp á er að þeir bæti sig í enskri tungu," sagði Pardew.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira