Fótbolti

Eiður Smári og Margrét Lára best

Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru valin knattspyrnumaður og knattspyrnukona ársins á hófi sem fram fór á Nordica nú í kvöld. Þetta er annað árið í röð sem Eiður Smári hreppir titilinn en Margrét Lára er að vinna hann í fyrsta sinn.

Úrslitin koma ekki mikið á óvart, enda hefur hefur Eiður Smári notið mikillar velgengni á árinu - sérstaklega síðari hluta þess þar sem hann hefur fest sig í sessi hjá einu besta liði heims, Barcelona. Margrét Lára var óstöðvandi fyrir Val í Landsbankadeildinni í sumar og skrifaði undir atvinnumannasamning við eitt besta lið Þýskalands, Duisburg.

Í öðru sæti hjá körlunum varð Ívar Ingimarsson, leikmaður Reading, og í þriðja sæti varð Hermann Hreiðarsson.

Ásthildur varð að sætta sig við annað sætið hjá konunum í ár en í þriðja sæti varð systir hennar Þóra B. Helgadóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×