Atorka og Straumborg í 3X 7. mars 2007 09:36 Ísafjörður. Jóhann Jónasson, forstjóri 3X Technology, segir sölu á meirihluta í félaginu til Atorku Group og Straumborgar verða nýtta til hraðari vaxtar félagsins á erlendum markaði en áður. Mynd/GVA
Fjárfestingafélögin Atorka Group hf., móðurfélag fyrirtækja á borð við Promens og Jarðboranir, og Staumborg ehf., sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, og fjölskyldu, hefur keypt meirihluta hlutafjár, 50,1 prósent, í fyrirtækinu 3X Stál á Ísafirði. Samfara kaupunum hefur nafni félagsins verið breytt í 3X Technology ehf. Jóhann Jónasson, forstjóri 3X Technology og annar tveggja stofnenda fyrirtækisins, segir að kaupin séu lokaáfangi á stefnumótunarferli sem hófst snemma á síðasta ári. Hafi margir möguleikar verið skoðaðir en ákveðið að ganga til samninga við Atorku Group og Straumborg. Kaupverð er trúnaðarmál. Jóhann segir nýju meirihlutaeigendurnar koma inn í félagið til að styrkja það í útrás á erlenda markaði, ekki síst í Norður-Evrópu. „Við horfum björtum augum til framtíðar og munum nýta aukinn kraft til aukinnar markaðssóknar,“ segir hann og bætir við að 3X Technology hafi verið að leiðandi fyrirtæki á sviði sjávarútvegslausna á innlendum markaði. Muni fjárhagslegi styrkurinn með sölu á meirihluta í félaginu gera kleift að halda áfram á sömu braut en á meiri hraða. Hjá 3X Technology starfa 50 manns, 45 á Ísafirði en fimm á söluskrifstofum þess í Kópavogi. .
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira