Blockbuster velur Blu-ray 20. júní 2007 08:00 Blágeislinn kynntur. Bandaríski myndbandarisinn Blockbuster ætlar að leigja út háskerpumyndir á Blu-ray staðli í stað HD-DVD. MYND/AFP
Bandaríska myndbandaleigukeðjan Blockbuster ætlar að einbeita sér að kaupum og útleigu á DVD-myndum á Blu-ray formi. Ákvörðunin þykir nokkuð áfall fyrir Toshiba og önnur fyrirtæki, sem hafa lagt allt sitt á að HD-DVD-staðallinn verði ráðandi í nýrri kynslóð háskerpumynddiska. Stjórnendur Blockbuster segja ákvörðunina hafa verið tekna eftir að flestir viðskiptavina keðjunnar hafi valið myndir á Blu-ray staðli fram yfir HD-DVD-staðalinn í 250 myndbandaleigum af þeim 1.450 sem Blockbuster rekur í Bandaríkjunum þar sem myndir á báðum stöðlum voru til boða. Þá mun hafa ráðið nokkru að meira myndefni hefur verið gefið út á Blu-ray formi en HD-DVD staðli. Matthew Smith, einn yfirmanna Blockbusterkeðjunnar, segir í samtali við fréttastofu Associated Press, að viðskiptavinir hennar hafi sent klár skilaboð. „Við getum ekki lokað augunum fyrir þessu,“ segir hann og bætti við að enn sem komið væri hafi flest fyrirtæki í afþreyingaiðnaði í Bandaríkjunum ákveðið að fara í lið með Sony og Blu-ray-staðlinum.
Tækni Mest lesið Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira