Handbolti

Stórleikur í fyrstu umferð

Meistararnir taka á móti Haukum í fyrstu umferð.
Meistararnir taka á móti Haukum í fyrstu umferð. MYND/Valli

Í gær var dregið í töfluröð fyrir Íslandsmótið í handknattleik sem hefst um miðjan september. Íslandsmeistarar Vals í karlaflokki taka á móti Haukum í stórleik fyrstu umferðar í nýju og glæsilegu íþróttahúsi sínu að Hlíðarenda. Þá mætast HK og Stjarnan, Fram fer til Vestmannaeyja og Afturelding tekur á móti Akureyri. Átta lið eru í deildinni og verður leikin fjórföld umferð.

Í kvennaflokki leika níu lið en þar verður spiluð þreföld umferð. Fram og Haukar mætast í fyrstu umferðinni, FH og Stjarnan eigast við í Hafnarfirði, Grótta tekur á móti HK og Valsstúlkur mæta Akureyri. Auk þessara félaga tekur Fylkir þátt í Íslandsmóti kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×