Hyggjast einkavæða olíuvinnsluna 7. janúar 2007 19:00
Íraska ríkisstjórnin, með aðstoð bandarískra embættismanna, er sögð vinna að setningu laga sem kveða á um að olíuvinnsla í landinu verði einkavædd. Slík lög gætu fært vestrænum olíufélögum einkaleyfi á olíuvinnslu í áratugi. Þetta er fullyrt í breska blaðinu Independent on Sunday í dag en blaðamenn þess segjast hafa séð lagafrumvarpið sem íraska ríkisstjórnin er talin ætla að leggja fyrir þingið á næstu dögum. Bandarískir embættismenn eru sagðir hafa unnið að frumvarpsgerðinni með Írökum. Olíulindir Íraks voru þjóðnýttar árið 1972 en verði þetta lagafrumvarp að veruleika munu þær verða einkavæddar. Það þýðir að risaolíufélög á borð við BP, Shell og Exxon gætu fengið leyfi til olíuvinnslu í Írak til allt að þrjátíu ára og á meðan þau væru að greiða niður kostnaðinn við boranirnar fengju þau 75 prósent ágóðans af vinnslunni en Írakar aðeins fjórðung. Slíkt fyrirkomulag væri afturhvarf til gamalla tíma en langt er síðan Sádi-Arabar og Íranir, stærstu olíuframleiðendur Mið-Austurlanda, tóku stjórn olíuvinnslu sinna landa í eigin hendur. Þessar fréttir, ef réttar eru, verða því án efa vatn á myllu þeirra sem á sínum tíma sögðu olíuhagsmuni raunverulega ástæðu innrásarinnar í Írak. Því harðneituðu ráðamenn að sjálfsögðu þá.
Erlent Fréttir Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira