Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Samúel Karl Ólason skrifar 21. október 2026 10:19 Donald Trump og JD Vance, forseti og varaforseti, í Hvíta húsinu í gær. AP/Jacquelyn Martin Donald Trump hefur talað við ráðgjafa sína í Hvíta húsinu um það að vísa blaðamönnum út og breyta salnum þar sem blaðamannafundir fara fram í sundlaug. Þetta er hann sagður hafa lagt til við Karoline Leavitt, fyrir hennar síðasta fund sem talskona hans, að hún myndi vísa blaðamönnum úr Hvíta húsinu og að það yrði hennar helsta arfleifð í starfi.
Ekkert varð af því en samkvæmt heimildum blaðamanna New York Times hafði forsetinn lagt þetta nokkrum sinnum til á mánuðunum áður en hún lét af störfum þann 27. ágúst. Eftir að hún fór mun Trump hafa haldið áfram að tala um salinn og að hann vilji láta gera hann aftur að sundlaug. Franklin D. Roosvelt lét gera þar innanhússsundlaug árið 1939 þar sem hann stundaði hreyfimeðferð vegna mænuveiki. Richard Nixon lét svo byggja yfir sundlaugina og gerði í staðinn sal fyrir blaðamenn. Þeir blaðamenn sem starfa í Hvíta húsinu gera það í litlu skrifstofurými sem er við hlið salsins. Sundlauginn er enn undir gólfinu. Sundlaugin var gerð þegar Franklin D. Roosvelt var forseti. Richard Nixon lét byggja yfir hana til að bæta aðgengi fjölmiðla að Hvíta húsinu.Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna Trump nefndi fyrst að breyta salnum aftur í sundlaug á sínu fyrsta kjörtímabili. Þann 27. september deildi hann svo mynd af salnum með textanum: „Falsfréttir“ og „fyrir“ annars vegar. Hins vegar var svo mynd af sundlaug í marmarahvítu herbergi, sem var einnig þakið gulli, með textanum: „FDR sundlaug“ og „eftir“. Mynd Trumps af Truth Social, frá því í september.Truth social Aðrir fjölmiðlar vestanhafs hafa sagt fréttir af því að Trump hafi ítrekað í gegnum árin sagt við ráðgjafa sína að undanförnu að hann vilji losna við blaðamenn úr Hvíta húsinu. Hingað til hafa þeir mótmælt þeim hugmyndum eða reynt að leiða þær hjá sér þar til Trump fer að hugsa um eitthvað annað, segir í grein NYT. Nú hefur hins vegar orðið sú breyting á að ráðgjafateymi Trumps hefur orðið fámennara og hann er sagður bálreiður yfir umfjöllun um sig, sem hann telur mjög neikvæða. Ráðgjafar Trump sem hafa aukin áhrif hjá forsetanum hafa hvatt hann til að finna leiðir til að refsa blaðamönnum. Í yfirlýsingu til NYT segir Steven Cheung, samskiptastjóri Hvíta hússins, að Bandaríkjamenn treysti falsmiðlum ekki, réttanlega, og að þeir falsi sögur á grunni lyga og heimildarmanna sem viti ekkert í sinn haus. „Allir valmöguleikar eru til skoðunar og við munum gefa út tilkynningu þegar það er við hæfi.“ Blaðamaður kallaður „mongólíti“ Samband Trumps og fjölmiðla hefur aldrei verið gott. Honum hefur lengi þótt umfjöllun um hann vera óvægin og röng. Hann hefur ítrekað kallað fjölmiðla falsmiðla, reynt að banna tilteknum fjölmiðlum að fjalla um sig og verið harðorður í garð tiltekinna fréttamanna, svo eitthvað sé nefnt. Sjá einnig: Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Einu sinni kallaði hann fréttakonu „svínku“ um borð í forsetaflugvélinni þegar hann var spurður út í Epstein-skjölin. Á fundi í Hvíta húsinu í gær hellti Trump sér yfir blaðamenn sem voru að spyrja hann spurninga. Hann var sérstaklega harðorður í garð blaðamanns Independent, sagði honum að hafa hljótt, spurði hvort hann væri sjúkur og sagði að eitthvað væri að honum. 😳 Trump loses it and SNAPS at a string of reporters, says Ilhan Omar might "go to jail," calls Somalia "a shit house," and boasts that thanks to a new program he announced today Americans "will make millions of dollars by turning others in" during absolutely deranged Oval Office event Here's a supercut:— Aaron Rupar (@atrupar) October 20, 2026 Það sem þessi tiltekni blaðamaður gerði af sér var að spyrja Trump út í nýtt átak ríkisstjórnarinnar sem snýst um að verðlauna fólk fyrir að koma upp um spillingu. Þeir sem benda á raunverulega spillingu geta fengið eitt prósent af því sem spillingin hefði kostað ríkið í verðlaun. Blaðamaðurinn spurði forsetann fyrst út í mjög gömul lög í Bandaríkjunum sem fela í sér að þeir sem koma upp um spillingu fá mun hærri greiðslur en í þessu nýja átaki Trumps. Hann spurði af hverju einhver ætti að nýta sér þetta nýja átak þegar viðkomandi gæti farið hefðbundina leið og fengið mun meira í verðlaun. Seinna meir spurði hann út í umdeildar breytingar sem Trump ætlar að gera á golfvelli í Washington DC. Í færslu opinbers reiknings Hvíta hússins á X er þessi blaðamaður kallaður „mongólíti“ og „fáviti“. Slegið er á svipaða strengi á opinberum reikningi JD Vance, varaforseta, þar sem blaðamaðurinn er kallaður fábjáni. .@POTUS absolutely roasts Mongoloid Moron @AndrewFeinberg for his disgraceful behavior: "What's wrong with you? Are you a sick person? I actually think there's something wrong with you." https://t.co/DyMDGdmBSc— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) October 20, 2026
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Katie Zacharia entist ekki lengi í starfi upplýsingafulltrúa Hvíta hússins en hún hefur verið leyst frá störfum aðeins örfáum dögum eftir að hún steig í pontu á sínum fyrsta blaðamannafundi í vikunni. 16. október 2026 17:51 Hættir við að skjóta Hasan í beinni Nidal Malik Hasan verður ekki skotinn til bana í beinni útsendingu. Donald Trump tilkynnti þá ákvörðun sína að hætta við að streyma aftöku hans á netinu en hún hafði verið harðlega gagnrýnd úr ýmsum áttum vestanhafs. 15. október 2026 14:50 Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Katie Zacharia, nýr upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, þykir ekki hafa riðið feitum hesti frá sínum fyrsta blaðamannafundi í gær. Sá fundur stóð yfir í einungis fjórtán mínútur og hún svaraði einungis spurningum frá þremur blaðamönnum og á þeim tíma leit hún ítrekað niður og virtist lesa handrit. Hún muldraði á köflum, ruglaðist á forsetanum og eiginmanni sínum og samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu eru strax byrjaðir að velta vöngum yfir því hve lengi hún geti varið í starfinu. 14. október 2026 16:27 Styður Repúblikana með tugum milljarða Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði. 13. október 2026 22:56 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira
Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Katie Zacharia entist ekki lengi í starfi upplýsingafulltrúa Hvíta hússins en hún hefur verið leyst frá störfum aðeins örfáum dögum eftir að hún steig í pontu á sínum fyrsta blaðamannafundi í vikunni. 16. október 2026 17:51
Hættir við að skjóta Hasan í beinni Nidal Malik Hasan verður ekki skotinn til bana í beinni útsendingu. Donald Trump tilkynnti þá ákvörðun sína að hætta við að streyma aftöku hans á netinu en hún hafði verið harðlega gagnrýnd úr ýmsum áttum vestanhafs. 15. október 2026 14:50
Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Katie Zacharia, nýr upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, þykir ekki hafa riðið feitum hesti frá sínum fyrsta blaðamannafundi í gær. Sá fundur stóð yfir í einungis fjórtán mínútur og hún svaraði einungis spurningum frá þremur blaðamönnum og á þeim tíma leit hún ítrekað niður og virtist lesa handrit. Hún muldraði á köflum, ruglaðist á forsetanum og eiginmanni sínum og samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu eru strax byrjaðir að velta vöngum yfir því hve lengi hún geti varið í starfinu. 14. október 2026 16:27
Styður Repúblikana með tugum milljarða Forsvarsmenn tveggja pólitískra aðgerðanefnda (super PAC) vestanhafs eru að draga úr aðstoð sinni við að minnsta kosti tvo frambjóðendur Repúblikanaflokksins. Repúblikanar hafa mikið forskot á Demókrata þegar kemur að peningum, þótt staða þeirra þyki ekki góð. Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður hafa gefið Repúblikönum um 44,7 milljarða króna fyrir kosningarnar í næsta mánuði. 13. október 2026 22:56