Léku eftir aftöku Saddams 10. janúar 2007 19:00
Litlu munaði að börn í bænum Gausdal í Noregi hengdu vin sinn á dögunum. Vinahópurinn hafði ákveðið að leika eftir aftöku Saddams Hússein, Íraksforseta, og fékk einn úr hópnum hlutverk einræðisherrans. Ekki hefur fengist fullnægjandi skýring á því afhverju börnin tóku upp þennan óhugnarlega leik. En hvað sem því líður kviknaði sú hugmynd meðal barnanna að sviðsetja aftöku Hússeins. Faðir eins barnsins segir börnin hafa fundið reipi, sett snöru um háls eins drengs úr hópnum sem síðan hafi farið upp á stól. Síðan hafi eldri vinir drengsins híft hann upp með snöru um hálsinn. Hann segir það mikið lán að drengurinn hafi náð niður á stólinn með fótunum aftur og vinirnir sleppt reipinu. Drengurinn slapp lifandi frá þessum háskaleik en er með mikið rautt sár um hálsinn. Læknir í Gausdal segir þetta alvarlegt mál. Tilviljun ein hafi ráðið því að ekki hafi farið verr. Foreldrar í bænum eru felmtri slegnir vegna þessa. Ein móðir segir sorg hafa verið fyrstu viðbrögð sín þar sem illa hefði geta farið. Faðir eins drengs í hópnum hvetur alla foreldra til að hafa nánar gætur á börnum sínum og reyna að skýra fyrir þeim að leikir sem þessi geti verið lífshættulegir.
Erlent Fréttir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira