Hætti að reykja eftir heilablóðfall 27. janúar 2007 19:15
Svo virðist sem vægar heilaskemmdir geti drepið löngun í sígarettur. Um er að ræða svæði í heilanum á stærð við tíukrónupening. Læknar í Bandaríkjunum þróa nú lyf sem getur haft áhrif á þennan hluta mannsheilans. Reykingamenn eiga oftast í erfiðleikum með að slökkva í sígarettunni í síðasta sinn. Þeir reyna ítrekað að hætta og oft án árangurs. Eitthvað reyndist bandarískum sjúklingi sem gengur undir nafninu Nathan auðveldara að hætta að reykja. Heilablóðfall er skýringin. Tiltekið svæði heilans - svokölluð eyja eða insula - skaddaðist hjá honum. Nathan hafði verið stórreykingamaður áður en langaði ekki í sígarettu þegar hann vaknaði á sjúkrahúsinu. Löngunin í nikótín var horfin og hann hafði gleymt fíkninni í það. Það hafði ekki verið meðvituð ákvörðun hjá honum að hætta og fyrir heilablóðfallið hafi það ekki hvarflað að honum.. Þetta varð til þess að læknar mannsins könnuðu áhrif samskonar heilaskemmda hjá sextán öðrum sjúklingum sem reyktu og kom í ljós að þeir höfðu allir hætt að reykja án vandkvæða og gefið sömu skýringu. Antoine Bechara, læknir Nathans, lýsir þessu þannig að það sé eins og rofa sé smellt og þá slökkni löngunin í sígarettur. Sérfræðingar sem rannskaða hafa fínk telja að breytingar á heilastarfsemi á þessu svæði geti haft áhrif á annað en bara fíkn í nikótín. Þetta svæði heilans breyti líkamlegum viðbrögðum í tilfinningar - löngun í þetta og hitt þróist þar. Hugmyndir eru uppi um að þróa lyf sem hafi áhrif á þennan hluta heilans - meðal annars til að hjálpa fólki að hætta að reykja. Nokkuð er þó í að það komi á markað.
Erlent Fréttir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira