Allt stefnir í verkfall hjá British Airways 29. janúar 2007 12:45
Allt útlit er fyrir að tveggja daga verkfall starfsmanna breska flugfélagsins British Airways hefjist á morgun. Flugfélagið hefur þegar aflýst 1.300 flugferðum, þar á meðal til og frá Íslandi. Reynt hefur verið til þrautar alla helgina að ná samkomulagi í þessari illvígu vinnudeilu British Airways við flugþjóna og flugfreyjur sínar. Gert ráð fyrir að deilendur hittist síðar í dag og freisti þess enn einu sinni að ná sáttum. Takist það ekki hefst verkfallið á miðnætti og nánast allt flug British Airways leggst af í tvo sólarhringa. Deilan snýst einkum um veikindadaga en stjórnendur fyrirtækisins ákváðu fyrir skömmu að takmarka rétt starfsmanna til töku veikindafría þar sem veikindi starfsmannanna þóttu að þeirra mati orðin óeðlilega tíð. Enda þótt samningafundum sé ekki lokið hefur flugfélagið látið boð út ganga til um 140.000 farþega sinna sem eiga pantað far með því næstu tvo daga og tjáð þeim að öllum flugferðum þess til og frá Heathrow-flugvelli og innanlands og Evrópuflugi frá Gatwick væri aflýst, þar á meðal ferðum til og frá Íslandi. Náist ekki samkomulag í deilunni eru frekari verkföll boðuð fimmta til sjötta og tólfta til fjórtánda febrúar.
Erlent Fréttir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira