Skipulögðu rán og nauðganir á stúlkum 5. febrúar 2007 19:00
Breskur dómstóll hefur dæmt þrjá menn til langrar fangelsisvistar fyrir að áforma að ræna tveimur stúlkum og nauðga þeim. Mennirnir skipulögðu illvirkið á spjallrás á internetinu. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi enda eru lýsingarnar á áætlunum mannanna hreint út sagt hrikalegar. Á spjallrásinni ræddu mennirnir, sem eru allir rúmlega fertugir og búa í Lundúnum, um að ræna tveimur systrum, þrettán og fjórtán ára, þegar þær væru á leið í skólann og nota þær svo sem kynlífsþræla. Samhliða þessum óhugnanlegu umræðum skiptust mennirnir á barnaklámmyndum. Skipulagning illvirkisins virtist komin vel á veg og kváðust mennirnir í samskiptum sínum taka morðin á þeim Holly Wells og Jessicu Chapmann frá Soham sumarið 2003 sér til fyrirmyndar. Þremenningarnir fengu fangelsisdóma á bilinu átta til ellefu ár, bæði fyrir að hafa barnaklám í fórum sínum og samsæri um nauðgun. Sá sem þyngsta dóminn hlaut neitaði allri sök og sagðist sjálfur vera að fletta ofan af barnaníðingum og væri að afla sönnunargagna til þess. Þetta er í fyrsta sinn sem menn eru dæmdir fyrir kynferðisbrot í Bretlandi á grundvelli samræðna á spjallrás.
Erlent Fréttir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira