Lifði af 3.600 metra fall 13. febrúar 2007 21:38
Fallhlífastökkvari sem féll 3.600 metra til jarðar og lifði það af setti nýverið myndband af atvikinu á internetið. Á myndbandinu sést hvernig hann hrapar nær stjórnlaust til jarðar, og að því er virðist, dauða. Michael Holmes varð heimsfrægur á svipstundu þann 12. desember í fyrra eftir að hafa komist lífs af með aðeins gat á lunga og brotinn ökkla. Bæði aðal- og varafallhlífar biluðu í stökkinu. Önnur þeirra opnaðist þó örlítið og hægði á honum í fallinu, úr 194 kílómetra hraða á klukkustund niður í aðeins 128 kílómetra hraða. Myndavélin sem tók atvikið upp var föst við hjálm Holmes. Á síðustu sekúndunum sést hvernig hann veifar í myndavélina og heyrist segja „Bless!" áður en skuggi hans stækkar á jörðinni fyrir neðan. Síðan varð allt svart. Vinur hans sem stökk með honum lenti nálægt honum og fór strax til hans. Vinurinn kallar til Holmes hvort það sé í lagi með hann og hann svarar bráðlega „Nei..." Holmes er einn af 10 bestu fallhlífastökkvurum í heimi og er atvinnumaður í greininni. Hann segist ætla að halda áfram að stökkva þrátt fyrir þessa óheppni. Engu að síður viðurkennir hann að hann gæti átt í erfiðleikum með næsta stökk. Hægt er að sjá myndband af atvikinu hér.
Erlent Fréttir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira