Sprengjuárás á Indlandi rannsökuð 19. febrúar 2007 19:00
Ráðamenn í Indlandi og Pakistan hafa fordæmt sprengjuárás á farþegalest í Indlandi í gærkvöldi. Segja þeir ætlun ódæðismannanna hafi verið að raska friðarviðræðum landanna og það takist ekki. Minnst 66 týndu lífi í árásinni. Hraðlestin, sem kennd er við vináttu, var á leið til Pakistan og farþegar flestir þaðan. Lestin tengir Nýju Delí á Indlandi við Lahore í Norður-Pakistan. Eldur kviknaði í tveimur vögnum í gærkvöldi þegar tvær sprengjur sprungu. Lestin var þá á ferð nærri þorpinu Deewana um 80 kílómetra norður af Nýju Delí. Minnst 66 týndu lífi í árásinni eða létust af sárum sínum og fjölmargir liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi. Við leit í lestinni fundust tvær ósprungnar sprengjur. Örvilnaðir ættingjar farþega hafa beðið fram eftir degi eftir upplýsingum um ástvini sem voru um borð. Indverjar rannsaka nú ódæðið. Engin samtök hafa lýst ábyrgð á því á hendur sér en samkvæmt indverskum fjölmiðlum hefur einn maður verið handtekinn. Stjórnmálaskýrendur segja allt benda til þess að aðskilnaðarsinnar í Kasmírhéraði hafi verið að verki. Ráðamenn á Indlandi og í Pakistan segja það hafa verið ætlun ódæðismannanna að raska friðarviðræðum milli landanna en þeim verði ekki kápan úr því klæðinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira