Fótbolti

Wenger: Við verðum að bæta okkur

NordicPhotos/GettyImages

Arsene Wenger var ekki kátur með frammistöðu sinna manna í Eindhoven í kvöld þegar lið hans Arsenal tapaði 1-0 fyrir PSV þar sem sannkölluð kjötkveðjuhátíðarstemming ríkti á pöllunum.

"Við duttum rosalega niður í síðari hálfleiknum þar sem við vorum slappir og ekki nógu þéttir. Mér fannst við aldrei ógna marki þeirra almennilega og okkur var refsað fyrir það. Við verðum bara að gangast við þessum úrslitum og reyna að gera betur í síðari leiknum á Emirates. Við eigum fína möguleika á að fara áfram í þessari keppni og til þess verðum að við að ná góðu jafnvægi í spilamennskuna fyrir síðari leikinn," sagði Wenger eftir leikinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×