13 í röð hjá Dallas 28. febrúar 2007 03:57 Josh Howard lét snúinn ökkla ekki stöðva sig í nótt og skoraði 15 stig í fyrri hálfleik NordicPhotos/GettyImages
Dallas heldur áfram að mala andstæðinga sína í NBA deildinni og í nótt vann liðið Minnesota á útivelli 91-65 og þar með 13. sigurinn í röð. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV og áttu heimamenn aldrei möguleika eftir að Dallas-vörnin hélt þeim í aðeins 27 stigum í fyrri hálfleiknum. Þá hefur Phoenix unnið alla útileiki sína gegn liðum úr Austurdeildinni í vetur og setti nýtt met í nótt. Dirk Nowitzki skoraði 23 stig og hirti 14 fráköst fyrir Dallas, Jason Terry skoraði 18 og Josh Howard var óvænt með eftir að hafa snúið sig á ökkla kvöldið áður og skoraði 15 af 17 stigum sínum í fyrri hálfleik. Kevin Garnett skoraði 15 stig og hirti 13 fráköst fyrir Minnesota. Phoenix Suns lagði Indiana á útivelli 103-92. Phoenix tryggði sér sigur með því að vinna lokaleikhlutann 30-13. Steve Nash skoraði 25 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir Phoenix og Amare Stoudemire skoraði 23 stig og hirti 18 fráköst. Jermaine O´Neal átti frábæran leik hjá Indiana og skoraði 28 stig, hirti 13 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og varði 6 skot. Þetta var 14. útisigur Phoenix í jafnmörgum leikjum á liði úr Austurdeildinni sem er besti árangur í slíkum leikjum í sögu NBA. Phoenix getur tryggt sér útisigra á öllum liðum úr Austurdeildinni með því að leggja Philadelphia í næsta leik, sem er strax í kvöld. Cleveland lagði New Orleans 97-89 þar sem LeBron James skoraði 35 stig og tvo þrista á síðustu mínútunni sem tryggðu liðinu sigurinn. David West skoraði 25 stig og hirti 10 fráköst hjá New Orleans. New Jersey lagði Washington 113-101 og vann þar með þriðja leikinn í röð. Vince Carter skoraði 27 stig fyrir New Jersey og Jason Kidd var með 26 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar. Gilbert Arenas skoraði 26 stig fyrir Washington. Milwaukee burstaði Golden State 122-101. Michael Redd skoraði 31 stig fyrir Milwaukee en Monta Ellis skoraði 17 fyrir Golden State. Þetta var í fyrsta sinn sem Milwaukee vinnur tvo leiki í röð síðan í byrjun janúar, en liðið hefur unnið 5 leiki og tapað 22 á árinu.
NBA Mest lesið Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Dagskráin í dag: Bikarliðin í Bestu og United í Evrópudeildinni Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira