Fyrstu frjálsu kosningarnar í Máritaníu í 50 ár 11. mars 2007 11:00 Frá kosningafundi Sidi Ould Cheikh Abdallahi, en hann er talinn líklegur sigurvegari í kosningunum í dag. MYND/AFP
Kosningar eru hafnar í norðvestur-Afríkuríkinu Máritaníu en þetta verða fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu í tæplega fimmtíu ár. Meira en ein milljón manna verða á kjörskrá og kjósa á milli 19 frambjóðenda. Árið 2005 tók Ely Ould Mohamed völdin eftir valdarán en hann velti þá einráðinum Maaouiya Ould Taya úr sessi. Mohamed lofaði því um leið að hann myndi gera allt sem í sínu valdi stæði til þess að koma á fót lýðræði hið fyrsta. Nú er stundin runnin upp. Síðastliðnar tvær vikur hafa frambjóðendur auglýst sjálfa sig og kom ekki til neinna átaka á milli frambjóðenda eða stuðningsmanna þeirra. Þeir sem nú ráða ríkjum mega ekki bjóða sig fram í kosningunum og er það gert til þess að tryggja að þær fari rétt og vel fram. Margir íbúar landsins segja að þeir vilji fyrst og fremst að tekjum af auðlindum landsins verði dreift jafnt á milli allra. Á meðal auðlinda eru olía, járn og gjöful fiskimið. Svartir íbúar Máritaníu leitast einnig eftir réttlæti en þeir hafa verið beittir mismunun í gegnum tíðina. Til að mynda var þrælahald ekki bannað með lögum fyrr en 1981 en ýmsir mannréttindahópar segja að það viðgangist enn á sumum stöðum í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira