Grunur um að árásir tengist átökum gengja 18. mars 2007 19:30
15 ára unglingsstrákur var stunginn til bana í Lundúnum í gærkvöldi. Hann er annar unglingurinn sem hlýtur þau örlög þar í borg á þremur dögum. Í síðasta mánuði voru þrír unglingar skotnir til bana í suðurhluta borgarinnar í þremur mismunandi árásum. Grunur leikur á að ódæðin tengist öll átökum gengja. Nafn stráksins sem myrtur var í gærkvöldi hefur ekki verið gefið upp. Ráðist var á hann nærri heimavelli knattspyrnuliðsins West Ham í austurhluta Lundúna. Hann var þegar fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést af sárum sínum. Að sögn vitna hlupu tveir menn af vettvangi þar sem ungi maðurinn lá í blóði sínu. Ekki er vitað hvers vegna hann var myrtur. Lögregla skoðar nú upptökur úr eftirlitsmyndavélum og leitar morðvopnsins. Þremur dögum áður var hinn 16 ára gamli Kodjo Yenga stunginn til bana þar sem hann var á göngu með kærustu sinni í hinum enda borgarinnar, nærri Hammersmith. Fjórir unglingar, tveir 13 ára, einn 15 ára og sá fjórði 16 ára, eru í haldi vegna rannsóknar á því morði. Fjórir unglingar til viðbótar og rúmlega tvítugur karlmaður hafa einnig verðir yfirheyrðir en látnir lausir gegn tryggingu. Í síðasta mánuði féllu þrír unglingar fyrir byssukúlum í þremur árásum í suðurhluta Lundúna. Grunur lék á að morðin þá tengdust átökum unglingagengja. Ofbeldisglæpir og byssueign voru þá tekin til umræðu á breska þinginu. Breska lögreglan hefur ekkert viljað gefa út um það hvort morðin nú tengist deilum gengja.
Erlent Fréttir Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira