Barnaníðingar stöðvaðir 17. maí 2007 13:15
Lögregla í Frakklandi og Belgíu hefur handtekið þrjá menn sem voru komnir á fremsta hlunn með að ræna belgískri telpu og misþyrma henni. Þetta óhugnanlega mál minnir talsvert á illvirki Belgans Marc Dutroux sem á sínum tíma rændi sex stúlkum og misþyrmdi þeim kynferðislega. Tveir mannanna sem hér um ræðir búa í Rúðuborg í Frakklandi og með aðstoð þriðja mannsins, sem býr í Belgíu, höfðu þeir fundið unga stúlku sem þeir hugðust ræna. Á blaðamannafundi sem lögreglan hélt í morgun kom fram að þeir hefðu ætlað að halda stúlkunni yfir helgi, misþyrma henni kynferðislega og festa ódæðin á filmu. Eftir nokkra daga átti svo að sleppa telpunni, en ekki fyrr en búið væri að brennimerkja hana með stafnum "S", sem vísar til franska orðsins fyrir minjagrip. Í fórum höfuðpaursins fundust tæki til slíkra merkinga, handjárn og myndbandstökuvél. Lögreglan hafði fylgst með níðingunum í nokkurn tíma en ákvað loks að láta til skarar skríða þegar ljóst var að þeir ætluðu að hrinda áformum sínum í framkvæmd. Þeirra bíður allt að tíu ára löng fangelsisvist.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Sjá meira