Yi fær ekki að spila með Milwaukee 17. júlí 2007 13:54 Yi Jianlian er talinn mikið efni, en landar hans vilja ekki sjá að hann fari til Milwaukee og ætla að beita sér fyrir því að hindra för hans þangað NordicPhotos/GettyImages
Kínverski framherjinn Yi Jianlian mun ekki fá að spila með liði Milwaukee Bucks í NBA deildinni ef maka má nýjustu fréttir frá Kína. Jianlian var valinn númer sex af Milwaukee í nýliðavalinu á dögunum en hefur enn ekki skrifað undir samning við félagið vegna þrýstings frá heimalandi sínu. Málið er að verða hið vandræðalegasta og stefnir í að David Stern forseti NBA deildarinnar þurfi nú að skerast í leikinn. Jianlian fór ekki í æfingabúðir til Milwaukee fyrir nýliðavalið og var það mál manna að leikmaðurinn hefði alls ekki áhuga á að fara til félagsins þó það myndi velja hann. Forráðamenn Bucks létu þessar viðvaranir sem vind um eyru þjóta og notuðu sjötta valréttinn til að krækja í þennan hávaxna og bráðefnilega leikmann. Það kom svo á daginn að hann hefur enn ekki skrifað undir samning við félagið, en talsmaður Guangdong Tigers, liðs hans í Kína, þvertekur fyrir orðróm sem verið hefur á kreiki um tregðu leikmannsins til að spila með Milwaukee. "Það er ekkert hæft í þeim sögusögnum að Yi vilji ekki spila í Milwaukee af því þar búi ekki nóg af Kínverjum eða af því það þjóni ekki efnahagslegum tilgangi. Það sem við höfum fyrir okkur í málinu eru hagsmunir hans sjálfs og um leið landsliðs Kína. Við viljum ekki að Yi fari til liðs þar sem hann fær ekkert að spila, því það yrði slæmt fyrir kínverska landsliðið svona rétt fyrir Ólympíuleikana í Kína," sagði yfirmaður Guangdong Tigers í samtali við fjölmiðla í Peking.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira