Íslenski boltinn

Gunnar Már jafnar fyrir Fjölni

Gunnar Már Guðmundsson er búinn að jafna fyrir Fjölni gegn Haukum og staðan því 1-1. Gunnar Már skoraði markið á 52. mínútu með skalla eftir hornspyrnu. Staðan var 1-0 í hálfleik eftir að Ásgeir Ingólfsson hafði komið Haukum yfir með marki á 28. mínútu eftir gott spil.

Leikurinn er þriðji leikur 8-liða úrslita bikarkeppnarinnar og er leikinn á Fjölnisvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×