Fótbolti

Íslendingar á skotskónum í Svíþjóð

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Helgi Valur Daníelsson skoraði í dag fyrir félag sitt, Östers IF.
Helgi Valur Daníelsson skoraði í dag fyrir félag sitt, Östers IF. NordicPhotos/GettyImages

Stefán Þórðarson skoraði mark IFK Norrköping í 1-1 jafntefli gegn IF Sylvia í dag í næstefstu deild Svíþjóðar. Stefán spilaði allan leikinn í framlínunni en Garðar B. Gunnlaugsson kom inn á sem varamaður. Norrköping er sem fyrr langefst í deildinni, eða með 15 stiga forskot á næstu lið. Þá skoraði Helgi Valur Daníelsson fyrir Östers IF í 1-1 jafntefli gegn Landskrona.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×