Fótbolti

Ís­lenskir dómarar í Sam­bands­deild en Danir horfa á skjáinn

Sindri Sverrisson skrifar
Ívar Orri Kristjánsson dæmdi tvo leiki í aðalkeppni Sambandsdeildar Evrópu á síðustu leiktíð.
Ívar Orri Kristjánsson dæmdi tvo leiki í aðalkeppni Sambandsdeildar Evrópu á síðustu leiktíð. Getty/Jeroen van den Berg

Það verða fjórir íslenskir dómarar við störf í Banja Luka í Bosníu á morgun þegar liðið sem kramdi Evrópudrauma Íslandsmeistara Víkings, FK Borac, tekur á móti finnsku meisturunum í KuPS.

Ívar Orri Kristjánsson verður aðaldómari og honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður fjórði dómari.

Þeim til fulltingis verða svo dönsku myndbandsdómararnir Jakob Kehlet og Mads Kristoffersen.

Leikurinn fer fram á Gradski Stadion Banja Luka í Bosníu og Hersegóvínu.

Athygli vakti í hinu langa landsleikjahléi á dögunum, þegar bæði A- og U21-landslið karla voru á ferðinni í Evrópu, að íslenskir dómarar fengu ekkert verkefni í þeim glugga.

Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, sagði þá aðspurður að VAR-leysið í íslenskum fótbolta ætti, samkvæmt upplýsingum frá UEFA, ekki að hafa áhrif á verkefni íslenskra dómara.

„Nei, ég held að það sé ekki að hafa áhrif á okkur ennþá. Það eru þau svör sem við fáum [frá UEFA]. Dómararnir okkar eru allir með þjálfun til að dæma VAR-leiki,“ sagði Þóroddur en bætti þó að við að það hjálpaði eflaust ekki til að ekki væri til staðar VAR í keppnunum sem íslenskir dómarar dæma í hér heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×