Fótbolti

Eiður aftarlega í goggunarröðinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen var ekki valinn í leikmannahóp Barcelona sem mætir Lyon á Camp Nou í kvöld.

Eiður var í hóp liðsins sem mætti Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni um helgina en þar kom hann ekki við sögu.

Hinir ungu Giovani Dos Santos og Bojan Krkic eru í hópnum sem og Gabriel Milito. Þeir gætu allir spilað sinn fyrsta Meistaradeildarleik í kvöld.

Lionel Messi er nú valinn í hópinn á kostnað Eiðs Smára en hann var fjarverandi vegna meiðsla um helgina.

Af þessu má ráða að Eiður Smári sé á eftir þeim Ronaldinho, Thierry Henry, Lionel Messi, Giovani og Krkic í goggunarröðinni. 

Hópur Barcelona: Valdés, Jorquera, Abidal, Sylvinho, Oleguer, Zambrotta, Milito, Thuram, Márquez, Touré Yaya, Xavi, Iniesta, Deco, Ronaldinho, Bojan, Giovani, Messi og Henry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×