Ekkert tilboð borist í Ragnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. desember 2007 14:51 Ragnar er hér til vinstri, með Hjálmari Jónssyni, félaga sínum hjá IFK Gautaborg. Mynd/Tommy Holl
Ragnar Sigurðsson segir í samtali við sænska fjölmiðla að ekkert tilboð hafi borist IFK Gautaborg í sig og að hann muni sennilega skrifa undir nýjan samning við félagið. „Ég held að við munum komast að samkomulagi," sagði Ragnar en umboðsmaður hans, Arnór Guðjohnsen, og yfirmaður íþróttamála hjá IFK, Håkan Mild, hafa rætt saman að undanförnu um nýjan samning. „Eins og staðan er nú verð ég áfram hjá IFK Gautaborg." „Mér hefur verið boðinn nýr samningur en ég er ekki búinn að skrifa undir neitt. Ég er þó alls ekki hræddur við að skrifa undir samninginn. Ég hef það afskaplega gott í Svíþjóð og spila með besta liðinu." Ragnar á tvö ár eftir af núverandi samningi sínum en segist vera tilbúinn fyrir stærri áskorun. „Ef það kæmi tilboð væri athyglisvert að skoða það. Ég er tilbúinn í eitthvað stærra. Margir hafa rætt um að ég þurfi að vera í Svíþjóð í eitt eða tvö ár í viðbót til að öðlast reynslu og þroska en maður aðlagast aðstæðum. Ef maður fer í betra lið verður maður sjálfur betri knattspyrnumaður." Ragnar var hrósað í hástert fyrir frammistöðu sína á liðnu tímabili og segir hann að það verði erfitt að fylgja því eftir á því næsta. „Tímabilið var frábært. Ég fékk jákvæða gagnrýni fyrir hvern einasta leik. Það verður erfitt að fá betri gagnrýni. En ég get orðið betri og ef ég verð áfram mun ég halda áfram að bæta mig."
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Körfubolti