Óttast fjöldasjálfsmorð sértrúarsafnaðar í Danmörku Óli Tynes skrifar 22. ágúst 2008 11:15 Ruth Evensen, leiðtogi safnaðarins. MYND/Nyhedsavisen
Dóttir leiðtoga sértrúarsafnaðar í Danmörku óttast að móðir hennar muni leiða safnaðarbörnin í fjöldasjálfsmorð. Guðfræðingur sem er sérfróður um málefni nýtrúarsafnaða er á sama máli. Ruth Evensen hefur um árabil leitt söfnuðu sem kallast Hús föðurins. Yfirvöld hafa á honum illan bifur en hafa ekkert getað aðhafst þar sem trúfrelsi ríkir í Danmörku. Soffía Evensen, dóttir Ruth, segir að söfnuðurinn sé á barmi gjaldþrots og mikil örvænting hafi gripið um sig. Áttatíu safnaðarmeðlimir hafa nú einangrað sig inni á hóteli á Lálglandi, með leiðtoganum og tekið börn sín úr skóla. Soffía segir að undanfarin misseri hafi söfnuðurinn verið mjög upptekinn af píslarvætti. Sýndar séu kvikmyndir um píslarvætti og það kennt af bókum. Fólkið sé spurt um hvort það vilji gerast píslarvottar fyrir Kristi, hvort það vilji láta krossfesta sig með höfuðið niður. Það hefur lengi verið fátt með þeim mæðgum og Soffía hefur skrifað bókina "Illska - Ruth stal lífi mínu," um uppvaxtarár sín. Guðfræðingurinn Tom Thygesen Fredriksen, sem er sérfræðingur í nýtrúarsöfnuðum segir í viðtali við danska blaðið BT að fjöldasjálfsmorð sé vissulega möguleiki.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira