Körfubolti

Eigendur samþykkja flutning Sonics

Stuðningsmenn Supersonics eru eiganda félagsins reiðir
Stuðningsmenn Supersonics eru eiganda félagsins reiðir NordcPhotos/GettyImages

Eigendur félaganna 30 í NBA deildinni gáfu í kvöld grænt ljós á að lið Seattle Supersonics yrði flutt til Oklahoma City. 28 af 30 eigendum lögðu blessun sína yfir flutninginn og því hefur þetta rótgróna félag færst ein skrefinu nær óhjákvæmilegum flutningi.

Liðið gæti í fyrsta lagi flutt strax á næsta tímabili, en félagið á reyndar eftir að uppfylla tvö síðustu ár sín af samningi við eigendur Key Arena hallarinnar í Seattle.

Málið er hið flóknasta því Seattle-menn hafa alls ekki sagt sitt síðasta og ætla ekki að láta flutninginn verða að veruleika baráttulaust.

Eigandi félagsins, Clay Bennett frá Oklahoma, lofaði á sínum tíma að hann myndi gera það sem í hans valdi stæði til að halda félaginu í Seattle. Hann virðist þó ekki hafa beitt sér mikið í þeim efnum og nýlega komu fram á sjónarsviðið tölvupóstar sem þykja ýta undir þær kenningar að hann hafi frá byrjun ætlað að koma félaginu til heimaborgar sinnar í Oklahoma.

Aðeins eigendur Dallas Mavericks og Portland Trailblazers settu sig gegn flutningnum í atkæðagreiðslunni í dag. Eigandi Portland gaf ekki skýringu á atkvæði sínu en Mark Cuban, eigandi Dallas, hafði fyrir nokkru lýst yfir andúð sinni á málinu.

Stuðningsmenn Supersonics eru skiljanlega mjög reiðir yfir framvindu mála og njóta stuðnings þorra NBA áhugamanna.

Þeim þykir blóðugt að gráðugir viðskiptajöfrar geti á einu bretti sópað ástkæru liði sínu úr borginni með græðgi og eiginhagsmuni að leiðarljósi.

Lið Supersonics hefur verið í Seattle frá stofnun eða í 41 ár. Liðið varð NBA meistari árið 1979.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×