Segir grafhýsi Kleópötru fundið Óli Tynes skrifar 26. maí 2008 13:27 Zahi Hawass að störfum. Þetta íkon er þó er ekki kista Kleópötru.
Æðsti yfirmaður fornleifa í Egyptalandi telur sig hafa fundið grafhýsi Kleópötru. Hann vonast til þess að rómverski hershöfðinginn Markús Antoníus hvíli henni við hlið. Zahi Hawass er heimsþekktur fornleifafræðingur. Hann hefur lengi leitað að grafhýsi Kleópötru drottningar Egyptalands. Hann hefur nú fundið musteri sem hann telur vera grafhýsið, um fimmtíu kúlómetra vestan við Alexandríu. Undir musterinu fundust 330 metra löng göng þar sem eru styttur af Kleópötru og margir peningar með ímynd hennar. Slíkt finnst ekki í venjulegum musterum, að sögn fornleifafræðingsins. Fyrir tveim vikum fundu grafararnir einnig styttu af Markúsi Antoníusi í þessum göngum. Hawass telur því mögulegt að hershöfðinginn hvíli einnig í grafhýsi drottningar. Antoníus og Kleópatra áttu heitt ástarævintýri saman og hún ól honum þrjú börn. Þau frömdu bæði sjálfsmorð eftir að hafa tapað orrustu gegn rómverska hershöfðingjanum Oktavíanusi við Actium árið 31 fyrir Krist. Oktavíanus varð síðar Ágústus keisari Rómaveldis. Uppgreftri hefur nú verið hætt meðan mesti hitinn er í Egyptalandi. En í haust ætlar Hawass að taka til óspilltar málanna á nýjan leik og afhjúpa grafhýsi þessarar heimsins frægustu drottningar.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira