Bilað viðvörunarkerfi átti þátt í flugslysinu í Madrid Óli Tynes skrifar 16. september 2008 11:15 Frá flugslysinu í Madrid.
Bilun í viðvörunarkerfi í stjórnklefa átti þátt í því að þota frá Spanair flugfélaginu fórst í flugtaki í Madrid í síðasta mánuði, að sögn spænska blaðsins El Pais. Blaðið vitnar í frumskýrslu slysarannsóknarnefndar. Eitthundrað fimmtíu og fjórir létu lífið í slysinu. Blaðið segir að viðvörunarkerfið hafi ekki látið flugmennina vita að vængbörð vélarinnar hefðu ekki farið út. Vængbörðin auka lyftikraft og ef þau eru ekki úti þarf vélin að vera á meiri hraða en ella til þess að komast á loft. Fyrir flugtak reikna flugmennirnir út hversu hratt hún þarf að fara til að komast í loftið. Þar eru teknir inn margir þættir. Svosem þyngd vélarinnar, hitastig og vindhraði og hversu langt vængbörðin eru sett út. Því lengra sem vængbörðin eru sett út þeim mun minni þarf hraðinn að vera. El Pais segir að vélin hafi verið í aðeins tólf metra hæð þegar raddað viðvörunarkerfi sagði „ofris, ofris." Það þýðir að vélin er ekki á nógu miklum hraða. Augnabliki síðar skall afturhluti hennar niður á flugbrautina. Hún sveigði til hliðar og lenti í skurði þar sem hún brotnaði og brann. Spænsk yfirvöld vildu ekki tjá sig um frétt blaðsins. Sögðu að þau myndu bíða þartil fullnaðarrannsókn lyki.
Erlent Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira